fimmtudagur, október 21, 2004

Rufus M. Knigget

Jæja, fjandinn er laus.

Síðasta eðlisfræði tilraunin búin og ég var að gera gelluna alveg brjálaða með mínum venjulegu látum. Ég meina hver myndi ekki vera hyper af tilhugsunni við að vera nýkominn úr prófi og svo beint að í tilraun.

It sounds like so much fun doen´t it.

Eða ekki. Já ég skellti mér í eðlisfræðipróf líka í dag. Rosa stuð að taka próf í sal 1 í Háskólabíó. Ömurleg borð og fleira gaman. Sem betur fer var maður ekki með mikið af drasli. Bara penni og strokleður. Það eru nefnilega svo skemmtileg prófin þarna. ENGIN HJÁLPARGÖGN. Fuck sem þýðir ekki einu sinni æðislega forritunarlega reiknivélin mín. Shit, jæja ok maður er orðinn vanur því að þurfa ekki að nota hana

Jæja svo bara helgi framundan. Carlsberg open á víst að vera á morgun en ætli maður mæti ekki bara fyrir bjórinn og pizzurnar. Ef einhver spyr af hverju ég tek ekki þátt segi ég bara að 5 ára systir hafi unnið mig í skák fyrir ári síðan og þá hef ég ákveðið að spila þetta aldrei framar.

Airwaves er á fullu núna um helgina og allir að verða vitlausir. Ég reyndar veit um talsvert af hljómsveitum sem ég væri til í að tékka á en maður er eitthvað snauður þessa daganna, pældi bara ekkert í að kíkja á dagskránna fyrr. Mínus eiga að vera á Gauknum á morgun og lofar það svaka stemningu. Þó að Krummi sé ekki besti söngvari í heimi þá er hljómsveitin ansi þétt og eiga mörg ansi góð lög. Botnleðja og Úlpa eru víst að spila í kvöld en ég hefði líka verið til í að sá þær. Anyways, maður verður bara pissfullur og skemmtilegur á morgun. Ennþá að íhuga að fara á Gaukinn. Ég þekkti ekki svo mikið af lögum frá þeim þegar Mínus hitaði upp fyrir Metallica en núna kannast maður við talsvert fleiri.

Jæja ég fékk snemmbúna afmælisgjöf frá mútter í gær. Ég stökk hæð mína af gleði. Fjórir diskar með Metallica til að bæta í safnið mitt.

Master of Puppets
Black Album aka Metallica
Load
Reload

og ég verð að segja að þrátt fyrir fyrri skoðanir mínar þá er Reload alveg fjandanum betri diskur. Á eftir að hlusta á Load í gegn til að geta commetað betur á það.

Lög eins og Unforgiven II, Memory Remains og Fuel koma sterk til greina sem nokkur af betri lögum sveitarinnar. Þá vantar bara upp á safnið Garage Inc, S&M og ef maður vill Garage Days gamli diskurinn, ég held samt að flest lögin á þeim eru á Garage Inc þannig að maður er ekkert að splæsa í hann ef diskurinn er allur á hinum. Svo er bróðir minn að fara út á morgun þannig að ég plata hann kannski til að tékka á hvort það sé eitthvað gott verð á diskunum. Láta hann kíkja líka á Slipknot diskana sem ég á eftir að ná í. Iowa og Slipknot fyrsti diskurinn. Báðir þokkalega þéttir diskar sem vel þess virði er að lauma í safnið. Þá á ég líka alla diskanna þeirra eftir að ég keypti mér nýja diskinn þeirra núna nýlega. Vol 3: The Subliminal Verses. Alveg dúndur góður diskur og mæli með fyrir alla hardcore rokk aðdáendur, sem að ég held séu frekar fáir í mínum lesendalista hérna en sem komið er.

Jæja, sláðu mig ef þú vilt að ég slái þig. Eða eitthvað. Helgin lofar góðu og ég kveð að sinni

Farinn að spila á gítarinn.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home