miðvikudagur, apríl 13, 2005

Ritari VIR

Takk fyrir og gleðilegan eftirmiðdag

Þetta var snilldarkvöld og undirritaður ánægður með rússnesku kosninguna. Hefði samt rústað þessu ef einhver hefði reynt að bjóða sig fram. Aðalskemmtiatriðið klikkaði þó þar sem núverandi ritara gafst ekki tími né tækifæri til að redda þeim hlutum sem nauðsynlegir þóttu.

Gildir einu það verður gert að ári þegar kvatt verður og ný stjórn boðin velkomin. Strax er byrjað að skipuleggja næsta ár og byrjað var á próflokadjamminu. Því næst tekur hin massa skipulagning fyrir skóga til að tryggja að VIR fái nú sitt fyrir það dæmi allt saman. Aðalástæða þess að maður var að fara í þetta embætti var auðvitað til þess eins að fara í nýnemaferðina aftur ;) Spurning um að reyna ná sama stað aftur bara ekki fara í Volta og hlusta á 3 tíma kynningu um ljósabúnað. Held ekki takk fyrir :P

Föstudagskvöldið var annars frekar skrautlegt þar sem pínt var ofan í mann 5 staup sem urðu að drekkast á innan við mínútu. Þóttist það takast bara nokkuð vel að koma niður en stemningin eftir það varð ekki beint sú sama :D Allt í lagi, næsta stjórn veit bara hverju þau eiga von á.

Annars hefur ekkert merkilegt verið að gerast síðan þá. Bara setið og lært eða hangið í tölvunni (að klára eðlisfræðiskýrslu)

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home