mánudagur, október 25, 2004

Grenjandi djöflar étandi bændur og aumi helvitis riddarinn

Já, svona rétt til að commenta um þessa suckwaves helgi.

Pósta núna í stað þess að fara sofa því ég nenni ekki að gera það á morgun. Ég meina hey!!! svefn er bara fyrir kellingar og löggur hvort eð er.

Ok, helgin eins og áður sagði lofaði andskoti góðu svona þegar hún var í uppsiglingu. Vitiði hvað!!! NEI HELVITIS HELGIN VAR FUCKING DRASL.


Drasl. Ok var stuð á föstudaginn.....nei
Stuð á laugardaginn.....NEI. ÞAÐ VAR FUCKING DAUTT.

Ok sorry með að vera með caps hérna á fullu en shit. Mér leiddist svo ógeðslega mikið í gær að ég gat næstum grenjað. Fór reyndar í mat til systur minnar og kærasta hennar og fékk æðislegan mat og frítt að drekka. Nema hvað að Svani litli þurfti einmitt að fá alveg duglega þynnku í gær. Yesss. Mark. Þannig að stuð fyrir drykkju var minna en ekkert í gær. Fékk svo Snævar til að koma og sækja mig. Kíktum í party til Jóns og viti menn, það var dautt þar. Ein 17 ára gella og heil hellingur af einhverjum gaurum. Whoopty fucking doo. Fávitar að auki. Stuð....nei

Föstudagurinn byrjaði vel. Gott chill í skólanum og svona, allir í stuði þar. Lofaði góðu að kíkja á fólkið í bænum um kvöldið. Nei sá mjög fáa sem ég þekkti. Beið í næstum klukkutíma til að komast inn á Kaffibarinn (Ekki hef ég minnstu hugmynd um af hverju í andskotanum ég var að hanga þar. Svo fór eitthvað djös fífl að rugla eitthvað í mér. Ég ákvað að steypa þvílíkt á móti og viti menn þá byrjaði maðurinn að nöldra.

"Hey maður þú mátt ekkert vera að bulla hérna"

"Nei því þú ert nefnilega alvaldur á sviði bulls og hefur einkaleyfi á að þykjast vera cool niðrí bæ og steypa í ókunnu fólki"

"Ehh, já þú verður bara að læra að bulla betur."

"Er það já, veistu ég held bara að ég noti mitt bull í stað þíns guðdómlega snilldar bulls. Þú virðist einmitt vera svo vel á veg kominn að gerast fyndnasti maður Íslands. Hypjaðu þig cockbite"

"Heyrðu maður ég var bara að bulla."

"Einmitt, hey pigfucker farðu aftur í sveitina ræfil."

En góða við það var að Krummi komst ekki einu sinni inn. Hehehehe. Svo gáfumst við upp og skelltum okkur á Celtic, aðeins inn í hlýjuna og bjórinn. Endaði á að spjalla við hella flotta gellu um allt og ekkert. Alas, fucking vinir hennar komu og þá var gamanið búið. Leit svo yfir á Hverfis þar sem Einir ætlaði að vera....sá hann akkúrat labba út og var orðið dautt þar líka. Dreif mig þá bara heim, frekar vonsvikin. Óþolandi þegar maður vonast eftir að hitta mest af liðinu og engin lætur sjá sig. Well crap. Ekki fullur en heavy þunnur. Doesn´t make sense.

Jæja, ekki gaman að þessu. Svo var ég alltof latur í dag að læra. Náði ekki einu sinni að klára línuna þannig að ég þarf að keyra á fullt í fyrramálið til að ná því og greiningunni áður en skýrslugerð í Eðlisfræði byrjar. Það er alltaf gaman. Jæja bara ein skýrsla eftir og svo lokaskýrslu kvikindið. Djöfull meika ég það ekki.

Fjör í næstu viku. Risafucking skilaverkefni í tölvunarfræði og helvitis skiladæmin í eðlisfræði. Fuck, þetta á eftir að verða áhugavert. Ahh looks like someone has got a case of the poor me´s

Hehe, Red vs Blue. Snilldarþættir. Mikið rosalega er gaman að ranta svona hressilega á netinu. Maður verður þá ekki alveg eins leiðinlegur í lifanda lífi nema þetta sé svona obsession að vera alltaf nöldrandi sífellt. Nah, nenni ekki að standa í því. Too fucking annoying. Það verður ekki hægt að hlusta á mann, hver nennir líka að tala við svoleiðis fólk sem er alltaf að bitcha yfir lífi sínu. Hef ég það svona slæmt. Nei, líf mitt er andskoti gott miðað við marga í heiminum. Jaa ef við förum út fyrir landið þá er maður í toppstandi. :D

En það er komið að einni svakalegri tilkynningu. Þetta á eftir að vera ansi sjokkerandi ég skal alveg viðurkenna það. Ég meina mér dauðbrá þegar ég frétti þetta.

Fór til læknis um daginn, var að fá niðurstöðurnar á föstudaginn og það var ekki fallegt. Svo virðist sem ég er haldinn persónuröskun eða einhverjum fjandanum. Ég veit ekki almennilega hvað þau kölluðu þetta en eitthvað virðist vera þannig að ég verði óstöðugri í mannlegum samskiptum, haldi alltaf að aðrir séu á móti mér eða eitthvað álíka. Fannst þetta vera djös kjaftæði en þetta fengu þeir út. Kemur greinilega ekki fram eitthvað augljóslega. Gæti orðið slæmt þegar lengra dregur nema ég passi mig á að taka alltaf lyfin. Helviti svekkjandi. Ég veit ekki alveg hvað ég á að gera í þessu.

Jæja of stutt líf til að nöldra.........





Allt sem þú lest er lygi.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home