2005 bara mætt á svæðið
Já, það var party hjá mér um áramótin. Seinast þegar það gerðist var fyrir svona 4 árum síðan. Þetta var rosa fjör og vil ég þakka öllum sem komu kærlega fyrir. You guys just made my day. Sérstaklega vil ég þakka ykkur hörðu djömmurum sem náðu að hanga til 9 um morguninn. You people make me proud.
Zam blondie vakti líka mikla lukku og er maðurinn alveg brilliant gaur. Endalaust steiktur í hausnum þar sem hann nennti að hanga þarna með okkur svona seint. Lúmskan grun hef ég nú um að hann væri allan tíman að reyna við litla skeggjaða dverginn okkar. Þegar ég heyrði það hló ég mig reyndar máttlausan þar sem ég hugsaði að hann ætti aldrei séns greyið. Hún er einmitt ein af þessum evil wimmin, sem láta karlmenn halda að þeir séu komnir á feitan séns en í raun finnst henni bara gaman að spjalla. ;)
Hehe, ég er bara svo fjandi ánægður með hvernig til heppnaðist með þetta party og er foreldrum mínum ævarandi þakklátur fyrir að leyfa þessa starfsemi. Einnig var ég svo svakalega heppinn að þurfa gott sem ekkert að taka til eftir þetta þar sem mútter reddaði málunum. Hún var víst eitthvað svo fjandi þreytt á öllu ruslinu að hún þreif bara allt saman. Sem þakklætisvott þá fær hún algjört frí frá eldhúsbraski í heila viku.
Annars hefur þetta jólafrí bara farið í rólegheit og afslappelsi. Gæti bara ekki verið betra. Svo eftir rúma viku þá er allt byrjað aftur og þá fer helviti af stað. Ég er ekki ennþá búinn að fá að vita úr nokkrum prófum sem ég fór í en ég óttast það versta :S Jæja, það hvetur mann bara til að leggja mun harðar að sér og andskotast til að standa sig í þessu. Þýðir ekkert að vera með einhvern durgshátt á þessu og halda bara að maður komist í gegn.
Einmitt, klukkan er orðin svoldið margt og er ég að spá alvarlega að fara koma mér að sofa. Ég segi bara góða nótt, gleðilegt ár og takk kærlega fyrir mig. Þið eruð æðisleg.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home