miðvikudagur, desember 08, 2004

Svefninn langi or a huge lack thereof

Já.....mikið rétt. Ég er pirraður, ekkert búinn að sofa og mætti í mest tilgangslausan tíma í morgun. Já ég er ennþá að mæta í skólann, þetta er helvitis kjaftæði.

Veit samt ekki hversu mikið ég ætti í raun að skrifa ég er svo pirraður. Meh...læt það vera, útskýri kannski af hverju.

Ok regular day bara í gær. Meira að segja bara alveg ágætis dagur. Bara læra og svona vesen, var auðvitað ekkert að nenna því en það er aukaatriði. Ég nenni aldrei að læra þannig að það er ekkert nýtt.

Þegar kom svo að því að fara að sofa þá klikkaði einhver andskotinn. Svona uppúr miðnætti ákvað ég að láta reyna á svefninn en var farinn að gefast upp um klukkan 2. Hálftíma síðar gafst ég endanlega upp á að geta sofnað þannig að ég fór bara aftur á fætur og fór að mála. Kláraði fæturnar á djöflinum sem ég hef verið að mála undanfarið. Svo um klukkan hálf 4 var það búið og ég reyndi aftur að fara að sofa. Nibb, ekki gekk það betur en svo að ég lá þarna í rúman klukkutíma án þess að nokkuð gerðist.

Sofnaði nú samt eitthvað því ég var allaveganna ekki vakandi þegar mútter kom og skutlaði mér í skólann um 8. Þannig að ég hef kannski sofið í klukkutíma eða svo :S

Annars vona ég bara ég mér takist að halda mér vakandi í dag svo þetta rugl endurtaki sig ekki í kvöld.
Korn – Somebody Someone. Þetta er alveg að gera sig hérna til að halda mér gangandi.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home