þriðjudagur, desember 07, 2004

Can´t get you out of my head

Já þetta lag eftir Kylie virðist henta best núna þessa dagana. Bæði lagið sem slíkt virðist eiga mjög auðvelt með að sitja fast í hausnum á manni og svo vitiði flest hvað ég á við ;)

Annars er ósköp lítið að frétta hér á bæ, býli, villu, whatever. Já próf framundan og ég aðeins of upptekinn við að vera latur í lærdómnum. Shit þetta er fucking MS all over again. Hélt að ég væri kominn yfir þetta andskotans rugl en greinilega ekki, its all just little bit of History Repeating. Fuck this all. Jæja, þá er eðlisfræði mania að byrja. Djöfull skal ég ná þessu helvitis prófi. Ef það er einhver áfangi sem ég nenni engan veginn að sitja aftur þá er það helvitis Eðlisfræðin. Það hefur að ég held ekki komið einn einasti fyrirlestur sem ég hef ekki eitthvað sofið í. Annaðhvort allan tíman eða stóran hluta af honum.

Stærðfræðigreiningin er að fara gjörsamlega í crapperinn, sömuleiðis línan, grrrr. Ekki að ég nenni eitthvað meira að sitja þá fjandans áfanga eitthvað aftur en samt frekar en Eðl 1V. Annars er ég nokkuð öruggur að ég nái 2 prófum. Þarf eiginlega ekki að taka fram Nám og störf, ég held að það sé svona auto pass fag. Veit ekki hvort maðurinn felli nokkurn sem leggur smá á sig í þessu. Prófið á víst líka að vera mjög létt. Ég vona það bara því þetta er deginum áður en stærðfræðigreining, minnir mig. Man ekki alveg hvort var á undan. Línuleg algebra og rúmfræði var alveg örugglega á föstudaginn eftir viku.

Ok shit ég verð að hætta að tala um þetta. I´m probably boring you to tears. Ekki að ég geri það reyndar alltaf en þarna var ég farinn að grenja úr leiðindum. :D

Jæja, núna er búinn að halda mér í nammibindindi í 3 vikur. Það er persónulegt met og er ég mjög ánægður með þetta. Nota bene að ég er ekki hættur að drekka gos eða borða kökur og svoleiðis, bara nammi. Þar sem ég drekk ekki kaffi sé ég enga ástæðu til að hætta gos drykkju. Ég meina kók er líka bara of gott með pizzu og boogah.

Ég er líka búinn að vera hyper duglegur að mæta í ræktina þrátt fyrir að ég hafi í raun engan til að drífa mig af stað og svoleiðis. Bara ég einn, jú auðvitað er Berglind alltaf að væflast þarna líka en er (with all due respect) ekki beinlínis að hrinda mér af stað eða neitt slíkt.

Búinn að fara næstum því á hverjum degi núna í tvær vikur. Bara pásur inn á milli á föstudögum þar sem ég hef ekki tíma útaf vísó og á laugardögum vegna þess að þá er ég hvort eð er í fótbolta og nenni ekki að gera bæði á einum degi. Svo er líka þokkaleg gaman að sjá strax smá árangur og hvetur það mann til að halda áfram og vera ekki að gefast upp. Þó svo að ég hafi kannski ekki valið ódýrasta staðinn í bænum þá er þetta samt hentugast fyrir mig. World Class í Laugum er langt styðst frá mér og ég skal alveg borga aðeins meira og geta farið hvenær sem mér hentar frekar en að eiga kort í Nautilus til dæmis sem kostar mun minna en ég þyrfti alltaf að fá einhvern bíl lánaðan og svo er það svo fjandi mikið úr leið að ég myndi bara ekkert nenna að fara og þá væri kortið orðið ansi dýrt. Speki.

Í gær varð ég mjög glaður. Kom sending frá Amazon sem bróðir minn pantaði og ég átti smá hlut í henni. 5 diskar takk fyrir og tveir sem ég hef átt í miklum erfiðleikum að finna hérna á landi.

Svo ég telji þá nú alla upp bara mér til gamans

Metallica - S&M
Metallica - Garage Inc.
Slipknot - Slipknot
Slipknot - Iowa
Korn - Greatest Hits

Með þessum 5 diskum náði ég að fullkomna Metallica, Slipknot og Korn safnið mitt. Þar með á ég alla diskanna þeirra original. Er einmitt að rúlla Garage Inc. í gegn í græjunum uppi. Spurning að fara setja disk 2 í.

Jæja, ætli maður haldi ekki bara áfram með eðlisfræðina. Djöfull nenni ég þessu ekki. Gekk líka svona skemmtilega vel að sofna í nótt eins og seinustu þrjár vikur reyndar. Hef mjög lítið getað sofnað á réttum tíma, en alltaf á morgnana get ég sofið endalaust. Þetta er ekkert smá óþolandi. Það reyndar tengist fyrsta umræðuefninu að vissu leyti en samt pirrandi. Jæja ciao bella.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home