sunnudagur, apríl 17, 2005

Áhugaverðar bílgeitur

Já góðir hálskirtlar.

Mikið hefur gerst og vert er að segja frá því. Ég ætla nú að sleppa því að mestu nema svona til að gleðja ykkur yfir óförum mínum. Finnst mér annars rétt að koma þessari sögu á framfæri því ef ég geri það ekki þá kemur það bara annarsstaðar frá. Mér finnst nú betra að þið heyrið þetta frá mér ;)

Þá hefst lesturinn. Þannig var mál með vexti að ritarinn ákvað að skella sér í partay þetta laugardagskvöld. Ekkert svo sem merkilegt að frétta um það þar sem stemning var með eindæmum róleg og mest lítið að gerast. Þar sem ritari var á bíl (og þetta er pínulítið mikilvæg staðreynd) notaði hann tækifærið og skellti sér á milli staða. Eftir gott rúst í trivial og smá karókí gaul var haldið niður í bæinn með fríðu (ef til smá útvarpsfreku :P) föruneyti. Þegar þangað var komið var haldið inn á Hressó og dansað smá. Stutt viðvera þar áður en haldið var inn á gaukinn þar sem ónefnd fylgdardama sem fær dulnefnið "Halldóra" fékk ókeypis drykk og var spjallað góða stund. Ritarinn fór bara út í harða efnið og fékk sér eitt stórt vatnsglas.

Nú var komið langt yfir venjulegan háttatíma og var þá brugðið á það ráð að fara halda heim á leið. Ónefnda fylgdardaman fékk skutl heim til sín og var stoppað þar í dágóða stund þar sem gleymd var stund í spjalli. Vildi nú svo ekki betur til en nefndur bjáni ákvað hálfpartinn að slökkva á bílnum til að spara einhvern andskotann. Þegar nefndur bjáni ákvað svo loksins að tími væri kominn til að fara heim þá vildi bíldruslan ekki andskotast til að fara í gang sökum rafmagnsleysis þar sem nefndur bjáni fór heldur ósparlega með ákveðna eiginleika sem í boði eru í bílnum. Eftir mikið streð við að reyna koma nefndri bíldruslu í gang var gefist upp og leitað ráða til að koma bíldruslunni þannig að hún væri ekki fyrir. Í fyrstu var reynt að ýta henni í næsta mögulega stæði. Fljótlega var gefist upp á þeirri bjánalegu hugmynd þar sem tveir aumir einstaklingar geta ekki ýtt heilu tonni á hjólum upp smá brekku. Því næst var ákveðið að koma druslunni fyrir rétt hjá.

Ekki vildi nú betur til en að þá var hún mest fyrir og blokkaði innganginn á bílastæði á ónefndu fylgdardömunni. Þá var loks ákveðið að troða helvitis bílfjandanum fyrir í götunni fyrir neðan og tókst það með þrjósku hjá fylgdardömunni (hún heimtaði að fá að pinnahælast og ýta bílnum frekar en að stýra honum, eins gott líka þar sem hann hefði líklegast endað á rafmagnskassanum en ekki við hliðina eins og til stóð). Þar með endaði þetta frábæra kvöld þar sem ritari þurfti þá (þrátt fyrir gylliboð um gistingu) að þramma heim eins og maður hefði verið á einhverju rosa fyllerí. Kannski bara eins gott. Löggan hefði örugglega þefað mann uppi og spurt “á hvaða leið ert þú væni” Kemur þér ekki rass við helvitis löggusvín.
Errm, já smá útúrdúr.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home