mánudagur, nóvember 01, 2004

1.nóv. The day of days. :D

Jæja, þá er maður víst orðinn árinu eldri og allt það dót.

Dagurinn byrjaði mjög skemmtilega. Var alveg að sofna í gær þegar ég heyri þvílík læti úti og hrekk svona helviti skemmtilega við. Endaði með því að ég gat ekkert sofnað fyrr en svona 4 leytið í nótt, gegt fjör. Þurfti svo að hendast af stað til að ná fjandans strætónum í morgun. Gula ófetið ákvað svo að láta bíða eftir sér og munaði næstum að ég kæmi seint í alveg tilgangslausan fyrirlestur í tölvunarfræði. Skipti svo sem engu því ég þurfti hvort eð er að koma mér í skólann til að klára þessi skemmtilegu verkefni sem ég átti eftir í Calculus og Línunni.

Geggjað fjör. Reyndar eldaði ég (og bróðir minn en ég skal alveg taka heiðurinn af þessu) stórkostlegan mat í gær. Svona til að minnast góðu dagana út í Vín þá bjuggum við til Dürum Kebab. Notuðumst við gamlar leifar (ekki eldgamlar.....bara svona tveggja ára :P) frá lærinu frá því á laugardaginn og gerðum þetta snilldarkebab. Mæli með eldamennsku minni. Bara ef ég fæ eitthvað nookie út úr því samt. :D

Já, það gaf mér samt enginn svar um daginn. Af hverju bloggar fólk ef það hefur ekkert að segja. Ég meina ég get alveg sest niður og bullað helling en til hvers. Finnst fólki svona gaman að lesa bara eitthvað að því er alveg sama um innihald póstsins. Pæling dagsins. Annað sem ég hef verið að velta fyrir mér. Jámm, það var nú ekki merkilegra en þetta......hvarf úr hausnum á mér sekúndu síðar.

Já nú kom það. Næstum því, kannski bara önnur pæling í staðinn en jæja here goes. Af hverju er fólk feimið, hvað er það sem veldur því að fólk skríði inn í skel þegar það þarf að tjá sig. Nú meina ég ekki að koma fram á sviði sem er talsvert annar og stærri hlutur. Það er nú meirihlutinn hræddur að koma fram, sumum tekst bara að yfirvinna það en aðrir ekki. Gildir einu, ég var meira svona að pæla í mannlegum samskiptum. Hvað veldur, þótt svo að ég þjáist af alveg vel óheilbrigðum skammti af feimni veit ég ekki af hverju. Tökum sem dæmi samskipti kynjana enda er það alltaf svo skemmtilegt umræðuefni hvort eð er :D Hvað er það versta sem gæti komið fyrir ef aðili spyr þann sem hann/hún er hrifin(n) af beint út. Einfalt nei. Er það virkilega hræðslan við höfnum sem veldur? Er samt ekki verra að vita aldrei hvort eitthvað hefði getað gerst í staðinn fyrir að lifa alltaf í óvissu. Ganga bara hreint til verks í staðinn fyrir endalaust hálfkák og vitleysu.

Já....pæling.

Svo var systir mín búin að lofa að baka súkkulaðiköku handa mér. Það er eins gott að hún standi við sitt og hafi extra krem. Dammit, extra krem og nóg af því. Það er eins gott fyrir þig. Heyriru það.

Jæja, nóg af bulli í bili.




0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home