miðvikudagur, nóvember 10, 2004

Larfur Lockley, og Mervin

Another day, another death.

Það var víst snúið upp á hendina á mér og heimtað. "Við viljum blogg, við viljum blogg."

Þá sagði maðurinn "Ég skal gefa ykkur blogg en þið biðjið ekki um lítið, þið þykist öll eiga þetta blogg og þá skal ég bara skipta því niður handa ykkur"

Angistaröskur heyrðist úr hópnum. "Nei, nei. Ekki skipta bloggnum niður. Ég á hann ekki, þessi maður þarna á bloggið"

Maðurinn stóð upp og kvaðst svo vera. Honum var þá réttur bloggurinn og haldið var áfram með messuna.

Mikið rétt gott fólk ég er kominn aftur. Þetta er auðvitað kolröng aðferð til að skrifa niður skýrslu. Hún þarf alltaf að vera í hlutbundinni þriðju persónu með nafntögum á borð boolean. Bla, bla ég nenni ekki að heyra það :D

Jæja, ég skal fara tala um eitthvað af viti. SORRY, foj. Aldrei má maður bulla aðeins. Ekki einu sinni á minni eigin bloggsíðu. Óforskammaða fólk.

En seinasta helgi var nokkuð góð. Byrjaði á frekar tómri vísindaferð á föstudag þar sem tveir eða þrír fyrsta árs nemar mættu. Nokkuð cool, voða fjör. Nei, nei þetta var fínt. Mjög góðar veitingar en ansi löng kynning. Talaði svo aðeins við hitt liðið þangað til tími var kominn að fara á Pravda. Höfn allra vitleysinganna. Lenti í þvílíkum umræðum við einhvern Norskan Læknanema. Gaur, take a fucking hint. Ég vill ekki kjamsa á þessu munntóbaki þínu. Mér er alveg sama þó þetta sé besti skítur norðan Suðurfjalla ég ætla samt ekki að fá mér. Shite

Fínn gaur samt, talaði þvílíkt um ********** og fleira í þeim dúr. Svo endaði ég á spjalli við verkfræðigellurnar um allan andskotan. Fannst best hvernig mér tókst að búa til þvílíka umræðu um skegg. Alltaf fyndið. Var einmitt að tékka hvort það væri nokkur sem mögulega fílaðu eins mikið og frændi minn var með. Nei var svarið þó svo að það væri í lagi að vera með smá en ekkert mynstur. Bara NO WAY. Hehe, anyway. Endaði nú samt ekki lengi og var farinn heim um 2:30 þegar systir mín var svo góð að koma og sækja mig. Reddaði mér alveg þvílíkt.

Laugardagurinn var svo helviti skemmtilegur. Fótbolti eins og venjulega kl. 4 en svo beið svaka party hjá Berglindi. Sem, mér enn til mikillar furðu er kölluð Bebe. Ég þarf einhverntíman að fá útskýringu á þessu. Hef ábyggilega fengið að vita það einhverntíman en get bara ómögulega munað það. Anyway, það var hörku stuð þar og kom í ljós að ég er alls ekkert svo vitlaus þegar kemur að Friends. Vann meira að segja Berglindi. Múhahahahahahahahahahahaha

Kom reyndar engum á óvart að Ása rúllaði þessu upp. Ég segi ennþá að spurningunum hafi verið hagrætt :P

Já ok en svona eftir þennan illa hlátur minn skelltum við hinu furðulega spili Mr. and Mrs. á borði....tja rúmið eiginlega. Ekkert borð sem hægt var að nota. En já spilið. Múhahahahahahahhaah, sorry. Gat bara ekki annað gert. Ása heimtaði að fá Ingu með sér í lið og varð það þeim að falli. Berglind og ég sýndum hvað við vissum mikið og afgreiddum málin. Ekki man ég alveg stigin en þetta var sæmilega rústað spil.

Ekki löngu síðar yfirgáfu Berglind og Ása samkvæmið og heyrðist mikið pískur frammi. Var ekkert mikið að pæla í því en allt í einu er einhver farinn að fikta í ljósarofanum. En er ég alveg glórulaus og hugsa bara að einhver bjáninn væri að leika sér. Þegar þær stukku allt í einu inn með köku og læti þá loksins varð mér ljóst hvað allt þetta tíst hafði verið um. Kom mér alveg skemmtilega á óvart. Þvílíkt gaman :D

Eftir ágætis drykkju var haldið í bæinn. Þar var mikið dansað þangað til ég var alveg búinn um fimm leytið og hugsaði líka að ég þyrfti að fara drulla mér heim ef ég ætti að geta lært eitthvað á sunnudeginu. Mér tókst alveg að rúlla línunni upp og var alveg þvílíkt feginn að þurfa ekki að vera í einhverju stressi að reyna að klára þetta á mánudeginum.

Annars er vikan bara búin að vera frekar róleg. Ekkert merkilegt að segja svo ég ætla bara ekkert að segja meira.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home