Dagur að kveldi kominn
Ooooh spooky titill, en að sjálfsögðu er ég bara að bulla eins og venjulega. Náði loksins að sofna almennilega í nótt og svaf þá allt ruglið úr mér. Eða svona næstum því, kannski meira eins langt og það getur náð :P
Já fyrsta vísindaferð ársins nálgast, húmir yfir skammdeginu og lyftir andanum þegar allt virðist vonlítið. Lítils mega menn vita þegar allt hefur yfirgefið þá og dauðinn hangir nærri, rólegur sem hyldýpið. Æpandi þögnin grípur um mann og heldur manni heljartökum. Neitar að sleppa þrátt fyrir grátandi bæn.
Bwhahaha what a load of shit. En já miðvikudagur og styttist í kvöldfjörið. Þarf reyndar að læra feitt og kaupa allar skólabækurnar, grrr þar með er 30 k farinn. Shit shit shit hvað þetta fucking drasl kostar mikið. Segja spekingar og aðrir þykistu fræðimenn að bannað sé að byrja setningu á smáorði og öðrum slíkum óþverra. Tja, puh, hmm, fari þeir sem einn göltur rakleitt í sláturhúsið. Ef arnaldur indriðason má gera það þá geri ég það bara líka. Gaurinn er búinn að selja endalaust margar bækur og enginn gerir athugasemd nema þessir gabb spámenn. Múhammed hvað.
Nenni ekki að tala um atburði síðustu helgar, búinn að segja nóg frá því svo sem. Annað en það að ég fór á alveg hörkudjamm á föstudeginum og skemmti mér konunglega með bróður mínum og Halldóru. Vaknaði alveg duglega út úr heiminum þegar ég þurfti að rjúka út í fótbolta. Merkilegt nokk þá spilaði ég alveg ágætlega en það virðist líka vera málið, þegar maður er sem mest út úr kortinu að þá er maður bestur. Spurning að fara mæta bara fullur í próf, held að það gæti alveg skilað ágætis árangri. Getur ekki verið verra en þetta hmm.
En svona þegar ég minntist á kort þá get ég ekki annað en hugsað til Ashanti hér til hliðar eða öðru nafni Jóa. Aumingja melurinn var að leita að Japönsku korti og ég held að ég geti talað fyrir flest okkar að þá hugsum við um kort af Japan og breytir litlu samt hvort það sé á einhverju tungumáli eða ekki. Finnur ekki plebbinn kort af Íslandi á Japönsku, bwhahahahahahahahahahahaha......hmm sorry fannst þetta bara of fyndið þetta var eitthvað svo týpískt fyrir hann. Sko þú hefðir eiginlega þurft að vera þarna.
Já, fólk sem skilur ekki hvenær það á að þegja. Tja, ég er á bíl en samt ekki á bíl. (ok ég veit að fjandans djókið var lengra en samt)
Svona til að hinn sauðgrái almúgi fattar hvað ég meina þá skal ég útskýra aðeins betur
Þannig var mál með vexti að ég var eitt sinn staddur í party. Að þessu glæsilega partey stóð Garðar hinn stóri. Hávaxinn með meiru þá var maðurinn að halda upp á útskrift sína og bauð til sín fullt af fólki. Þar á meðal eitt stykki Halli Húmoristi. Þessi einstaklingur kaus að vera það kúnstugur að þegar boðið var upp á bjór var svarið einmitt svona í styttri útgáfu
"Ja, sko, ég er eiginlega á bíl en samt er ég ekki á bíl"
To which we replied "???? Hvað í andskotanum meinaru maður, annaðhvort viltu bjór eða ekki. PUNKTUR"
*Snicker snicker*
Að öðru slíku dæmi. Aftur var ég staddur í partey. Að þessu sinni hjá bróður mínum og var hann að halda upp á innflutning sinn í nýja glæsilega íbúð
Þar var maður sem fattar eigi að ég er búinn að ná því sem hann segir en heldur samt áfram að bulla um það. Ok, eftirfarandi samtal átti sér stað.
Maður: "Já, veistu við vorum þarna á klúbbnum að ræða aðeins meira um refsiréttinn.....blablabla 'eitthvað bull um lögfræði'..... sko og þarna Gummi Pé var eitthvað að vesenast...."
*Smá þögn sló á hann*
Maður: "Ja, ykkur finnst þetta væntanlega ekkert áhugavert sem ég er að segja er það nokkuð
*Í augnblikinu fannst mér hann nokkuð góður. Áttar sig á því að tal hans er kannski ekki að hrífa alla á svæðinu með sér.*
Ég: "Nei, veistu ef þú værir að tala um stærðfræði nennti ég heldur ekki að hlusta á þig og ég er í verkfræði"
Maður: "Já, enda hefðir þú líka þurft að vera búinn að fara í gegnum lögfræði í nokkur ár og vera búinn að fara þarna líka"
Ég: "Já svona maður hefði þurft að vera á staðnum"
*Hérna hélt ég að málið væri dautt. Ég var alveg búinn að fatta hvað hann var að rausa um og gerði honum skýrt að ég skildi það. En neeeei.*
Maður: "Nei, sko þú hefðir meira þurft að vera búinn að fara í gegnum lögfræði í svoldinn tíma og búinn að grípa nokkur concept og svona...."
*Hérna greip ég fram í fyrir honum þar sem ég sá að hann var eiginlega að segja sama hlutinn aftur*
Ég: "Já, þú hefðir þurft að vera á staðnum"
*Munaði minnstu að wink wink kæmi líka*
Maður: "Þú hefðir eiginlega......"
*Þar sem ég sá að mannfýlan var bara að hjakka í sama farinu þá greip ég aftur fram í fyrir honum og talaði aðeins hærra.
Ég: "Sko, ég fatta alveg hvað þú meinar og þú hefðir bara þurft að vera á staðnum. PUNKTUR"
Takk fyrir og góða nótt :P

1 Comments:
Ha ha ha já han Halli Húmoristi djöfull var þetta fyndið ég hélt að ég myndi fara úr kjálkalið þegar hann svaraði mianna ha ha ha Kv Garðar K
Skrifa ummæli
<< Home