miðvikudagur, júní 01, 2005

Life on the fast lane.

Nema bara ekki hjá mér. Svona síðustu daga hef ég farið nokkuð oft hingað inn í þeim tilgangi að þjóna blogglausum lýðum en ekkert gengið. Ég sé ekki mikinn tilgang í að bulla bara hérna án þess að koma með einn eða tvo sannleiksmola svona inn á milli. Láta fólk vita hvað er að gerast í mínu merka lífi og af hverju ég ætti að vera keisari alheimsins.

Nema bara ekki, þar sem rólegheitin hafa hreinlega náð hámarki. Það er nákvæmlega ekki rass að gerast í vinnunni. Ég sit við tölvuna mest allan daginn og svona undantekning að ég vinn í raun eitthvað. Reyndar má segja að það sé svolítið spennandi að fara gerast.

Ég ákvað að skrá mig á almennilegt gítarnámskeið og byrja í næstu viku. Fínt að fá smá kennslu í hvernig má gera betur í staðinn fyrir að reyna læra bara sjálfur. Er líka byrjaður af mun meiri krafti að spila á gítarinn og er næstum því kominn með heilt lag í gegn. Granted, það er mjög auðvelt en engu að síður.

Svo í öðrum fréttum þá er ég að fara í Djúpu laugina á föstudaginn að næla mér í einhverja tjellingu þannig að allir verða að fylgjast með. Reyndar ekki alveg en ég verð þarna samt sem áður. Það eru aðrir sem þurfa að reyna. Ég er á leiðinni að gerast einsetumaður upp á Esju að hræða alla túristana burt með mínum rosa göldrum (lesist: Að vera eins brjálaður og einsetumaður á Íslandi mögulega getur)

Þannig að já.....look out he´s got a nug

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home