miðvikudagur, september 21, 2005

Zwei monat gefahren.

Blergh. En spáið í því. 2 póstar í einum mánuði. Þetta er bara óþekkt fyrirbæri á seinni tímum þessa bloggs. Kannski spurning að mér er farið að leiðast óþarflega mikið þegar ég fer að rugla eitthvað hérna inni.

Sit hér í góðu yfirlæti í tölvuveri aðalnörda háskólans og bíð eftir næsta tíma. Var einmitt vakinn óþarflega snemma í morgun og rifinn af stað í leiðangur til að bjarga því sem hægt var af geislaspilara bílsins. Það reyndist gjörningur á sinn hátt þegar maður að nafni Sven Ingolfstadt Thorvald gekk fyrir vösku liði Suzuki manna og byrjaði að fikta. Hélt að tækið myndi springa af takkagleði mannsins en svo reyndist ekki vera. Jepplingurinn þolir víst meira en hann lítur út fyrir að gera. Ég vona bara að ruglið hafi lagast því það er ekki beinlínis gaman að vera í góðum fíling að þruma System Of A Down í botni.....,jaa eins mikið í botni og þessi bílskrjóður ræður við, þegar allt í einu BBC NEWS kemur miklu hærra og truflar tónlistina. Það hafa komið stundir þar sem ég var næstum búinn að keyra á eitthvað.

Annars er planið að segja sig úr MOK áfanganum. Þarf eiginlega að einbeita mér svoldið að stærðfræðinni og að tekka milljón bls af formúlu rugli er að taka andskoti mikinn tíma. Tala nú ekki um þegar fjandans heimadæmin eru líka 5 tíma pakki. Verð að ná fjandans stærðfræðinni núna. Annars get ég gleymt því að halda hérna áfram.

  • Málefnalegur vettvangur fyrir misvelgefið fólk


  • Feita helvitis snilldin!! Þetta er bara verið að bjóða upp á rifrildi um tilgangsleysi rifrildis og nöldur þar á bakvið.


    Aska....súr aska dum dum dum.!!!!!!!

    En já. Eftir smá eftirgrennslan þá er þetta hundleiðinlegur linkur þannig að ég myndi ekkert vera að klikka á hann....nema þið hafið nú þegar gert það og þá vorkenni ég ykkur bara ekki neitt :P *snicker*

    Jæja, tilgangsleysi þessarar færslu er einmitt titill dagsins. Ætla gera sem minnst í dag. Múhahaha.

    0 Comments:

    Skrifa ummæli

    << Home