fimmtudagur, júní 23, 2005

Blogg, til hvers er það?

Já, ég fór aðeins að spá í þessu núna um daginn eftir að hafa lesið weblog hjá gítarkennaranum mínum. Honum Gumma frænda. Þá rann svona upp fyrir mér pæling sem ég hugsaði akkúrat þegar ég var svona í fyrstu skrefunum í að henda upp blogg.

Til hvers er akkúrat svona blogg. Nú í mínum hugleiðingum ákvað ég fyrst og fremst að gera svona vefsíðu þar sem ég velti mér upp úr ýmsum hlutum eða bullaði bara eitthvað út í loftið þegar mig/mér langaði til þess.

Svo í áframhaldi af lesningu Gumma frænda þá hvarlaði að mér að þetta væri ekki alveg raunin í dag. Núna er þetta svona meira eins og dagbók um hvað ég er að gera þennan og hinn daginn. Hlutur sem ég ætlaði mér alls ekki að gera. Fólk getur spurt mig um svoleiðis bull og þá er frekar auðvelt að svara því. Ef ég ætlaði að gera dagbók þá hefði nú alveg eins gott að ná bara í blað og penna and go nuts.

Kannski er líka málið, er ég að gera þetta fyrir mig eða fyrir æstan múginn sem dauðleiðist í sinni vinnu og langar að hafa eitthvað að gera? Finnst gaman að sjá hvað þessi og hinn gerðu um sína helgi án þess beint að spurja þá. Enda fær maður líka stundum eins pirrandi svör við spurningum eins "Hey, hvað gerðir þú í gær?"

To which people answer "Lestu blogginn. Commentaðu!!" What.....

Nei veistu, ég held bara ekki. Er orðið svona rosalega erfitt að hreinlega bara svara þessarri einföldu spurningu. Lestu blogginn....googlaðu það.

Lenti einmitt á spjalli við einn gaur á ircinu um daginn. Talið barst að týndum meðlim á spjallborði sem við báðir vorum þáttakendur á. Pælingin var aðallega hvaðan hann hefði fengið notendanafnið sitt. Ég spurði og einstaklingurinn svaraði "Googlaðu það!!" og sagði svo "I´m too disgusted with people to say!" What....hvers konar rugl er þetta.

Kom í ljós að eins einfalt og það var þá kom nafnið úr bókum Roberts Jordan: The Wheel of Time. Halló, hversu erfitt var nú eiginlega að svara þessu. Einfalt, stutt og þægilegt. The Wheel Of Time. Tekur ekki einu sinni langan tíma að skrifa það.

Svo tók ég líka eftir því að mér finnst alveg hundleiðinlegt að þylja upp svona hluti...já sko party hjá þessum svo fórum við þangað, þangað og þangað og gerðum þetta, þetta og þetta blablablablabla. Nei, ég nenni ekki að lesa það en ætla mér ekki að commenta á hvort öðrum finnst það. Þetta er eins með rassgöt og skoðanir....allir hafa slíkt.

Hér eftir ætla ég því að reyna frekar að koma með svona skoðanir mínar á ákveðnum málum og þannig. Ætla reyndar ekki að gerast pólítískur eða neitt þannig, bara spurningin er að sleppa öllu þessu leiðindabulli. Segi kannski ekki að ég hætti alveg að tala um hvað skolast upp á mína daga eða hvað. En ekki alveg eins sauðsleg upptalning á svona hlutum. Nobody cares In my honest opinion.

Well in my honest opinion your honest opinion sucks.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home