fimmtudagur, júní 30, 2005

We dwarfs want to go swimmin, with little hairy wimmin

Bööö, ljóta tölva og þessir helvitis stælar alltaf í þeim. Ótrúlegt þegar maður er búinn að setja niður ágætis póst þegar maður ýtir svo á submit. Nei hvað gerist. PAGE CANNOT BE DISPLAYED. WTF!!! Ææ helvitis bögg, en þá er bara að byrja aftur.

Það sem ég ætlaði nú að minnast aðeins á og kom upp í hugann hjá mér í morgun voru lítil skrækjandi mezzoloth. Handbendi djöfulsins eða einnig þekkt sem smábörn, eða bara svona börn yfir höfuð.

Eitthvað virðist þeim vera illa við mig eða almennt í fyrstu eitthvað hrædd. Ekki skil ég af hverju því enginn annar er það. Ekki einu mýs gætu verið hræddar :D

Ástæðan fyrir þessu tel ég líklegast ja..enga. Það er ekki eins og ég geri í því að hrella neinn. Þau bara fara að grenja sem er svona helsta ástæðan fyrir því að ég kem ekki nálægt þeim. Ef ég mögulega kemst hjá því. Gengur yfirleitt ekki það sem ég reyni eins mikið að forðast. Sérstaklega ekki í vinnunni að því er virðist. Var einmitt núna rétt áðan just minding my own buisness að setja fleiri glös fram við kaffivélina þannig að kúnna************************** hefðu nú eitthvað til að drekka úr.

Þá var einn krakki þarna sem byrjaði eins og svo margir aðrir að glápa eitthvað á mig. Láttu mig í friði helvitið þitt. Þannig að ég leit bara á hann og viti menn, næstum því byrjaður að vola. God dammit. www.idontwantoneofthose.com. Bara Hell No

Annars hef ég svo sem ekkert mikið að segja. Fínt að gera eitthvað núna svona þar sem mér leiðist nokkuð. Það er nú samt ágætt stundum að hafa nákvæmlega ekkert að gera í vinnunni. Þá getur maður leikið sér á netinu og lært kannski líka aðeins í leiðinni.

Kíkti einmitt á toothsmith bloggið um daginn. Hélt ég ætlaði að tapa mér þegar ég las um seinni Glasgow ferðina, þetta var ógeðslega fyndið

Jæja, segjum þetta ágætt í bili.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home