mánudagur, febrúar 06, 2006

Árið 2005 búið fyrir löngu og ekkert að gerast hérna.

Ég sagði víst í síðustu færslu að kæmi betri póstur eftir 19. desember. Aldrei tilkynnti ég nákvæmlega hvenær sú færslu myndi koma og með því þóttist ég sleppa við nöldurseggi og bloggkvartanir. Greinilega voru það mistök þar sem allir elska mig og vilja heyra sem mest frá mér. Annars hefðu ekki allir verið að væla svona mikið. Jú jú, getið sagt að ykkur leiðist og farið blogghringinn yadda yadda en við vitum öll sannleikan. Ég er æðislegur og þið getið ekki lifað án mín.

Annars er nú ósköp lítið að segja frá þessum síðustu vikum sem ég hef verið fjarverandi. Merkilegast bara spilun á hinum frábæra leik World of Warcraft :O Aldrei bjóst ég við að fara í neitt svoleiðis en djöfullinn náði mér. I´ve joined the Dark Side.

Ég var að hugsa um að ranta alveg helling en ég bara nenni því ekki. Some other day perhaps.

Kveðja,

Ásgeir

Þekktur sem Aggro Hamsturinn.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home