fimmtudagur, mars 30, 2006

Smá update

Já, ég ætla ekki alveg að hætta með þetta en greinilegt að fólk þorir ekki að commenta neitt hérna. Sumir töldu að þetta hafi verið svo mikill reiðipóstur síðast að það kom ekki múkk hérna frá.

Fínt er, ef maður hefur ekkert að segja þá á maður ekkert að tjá sig. Kálhaus (langsóttur húmor, ekki skot á fólk)

Kannski þarf ég að fara setja skýringar með öllu sem ég skrifa hérna (eða sleppa því algjörlega) til að fólk hætti að misskilja mig. Það er auðvitað ekki hægt því ég get ekki forðast það (og einmitt enginn heldur, sérstaklega þegar um skrifað mál er og fólk áttar sig ekki á kaldhæðni í skrifum sem eru einmitt svo augljós í tali...eða hvað?)

Annars hef ég verið að pæla meira hvað ég ætti að gera við þessa síðu áfram. Hvort þetta ætti að vera svona Hatemail sendingar frá Mr. McSweeney eða almennar pælingar. Hvað sem því líður þá verður ekki meiri upptalning á atburðum í mínu daglega lífi (og fyrir ykkur fattlausa fólkið: hvorki merkilegir atburðir eða venjulegir) þar sem mér finnst það gay ass leiðinlegt. Ég kannski minnist á einhvern atburð svona inn á milli þannig að fyrir þá sem teljast sniðugir og hanka mig á því lesa fyrst tuða svo.

Hugsanlega verður þetta bara blanda af ýmsu. Pælingar, hugmyndir um tónlist, leiki og eitthvað fleira. Bara það sem mér dettur í hug hverju sinni.

Hmm

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home