þriðjudagur, febrúar 14, 2006

Hey you hey you! Devils’ little sister.

Nýr dagur, ný mæða. Fleiri leiðindi, meira rugl. Það hættir víst aldrei.

Maður er nú staddur á tímamótum. Erfitt að ákveða sig hérna sérstaklega þegar möguleikarnir eru svona uppfullir af kostum og göllum. What to do, what to do?

Don´t want to talk about politics! Don´t preach or talk about politics! Don´t let me talk about politics! Don´t give a shit about politcs!

Hræsnarar með tölu.

Svona burtséð frá tilvitnunum þá er mest lítið að gerast hérna hjá manni. Búinn að slæpast duglega í nokkra mánuði og það er um það bil á leiðinni að fara breytast. Taka sig saman í andlitinu og hætta ruglinu. Var í atvinnuviðtali fyrr í dag og hugsanlega kominn með vinnu í enda vikunnar. Ekkert orðið víst ennþá en verður maður ekki að vera bjartsýnn. Talandi reyndar um bjartsýni þá gæti maður nú alveg eins verið á leiðinni til Frakklands í vinnu. Þá reyndar erum við að tala um MIKLA bjartsýni. Svona á bilinu að....þú veist....hafa mikla bjartsýni. Greinilegt að maður hefur ekki dundað sér við bloggstörf lengi þegar witty commentin eru eitthvað að standa á sér.

Var að lesa áhugaverða síðu um daginn. Rakst á hana þegar mér var bent á versta samtal í heimi. Sniðug lesning um algjöran dela í Bandaríkjunum sem lenti í því að vera látinn halda að hann hafi troðið í einhvern gaur. Þótt hann stóð í þeirri meiningu að einstaklingurinn væri foxy gella að þá virtist viðmælandi sannfærður um að gellan væri í raun gaur en bara búinn fara í svakalega aðgerð. Vinur okkar var víst ekkert voðalega hrifinn af þessari hugmynd og fríkaði nett út. Mæli með að þið googlið Tucker Max og látið hneykslast.

Var annars að trimma í gegnum gamla bloggið mitt sem ég skrifaði á ensku. Nokkuð sniðugt efni þar og frekar fyndið að lesa hvað maður var að röfla fyrir árum síðan. Ekki að maður sé eitthvað hættur í röflinu þessa dagana, kannski bara aðeins breytt.

Kannski að enda þessa færslu á fallegu ljóði:

Love song for the dear departed,
Head stone for the broken hearted, 
Arm's to kill, 
Or flowers to steal .
Head trip for the mortal earthbound,
One sip of the blood that I found. 
Lying here,
I’m dying here. 

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home